Þjónustustörf
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Orðaforði sem tengist þjónustustörfum er hafður að leiðarljósi í þeim tilgangi að styrkja þá nemendur sem vinna eða munu hugsanlega vinna við þjónustustörf í framtíðinni. Brotið verður upp hefðbundið mynstur í enskukennslunni með áherslu á uppgötvun, gagnrýna hugsun, umræður og ígrundun ásamt hefðbundnum kennsluaðferðum. Unnið verður með ýmis hugtök sem tengjast þjónustu og þjónustustörfum á fjölbreyttan hátt.
Þekkingarviðmið
- Að enskukennsla getur verið fjölbreytt og áhugamiðuð
- Fjölbreyttum hugtökum sem tengjast þjónustustörfum
- Mikilvægi þess að geta tjáð sig á enskri tungu þegar unnið er við þjónustustörf
- Að vinnuferlið er ekki síður mikilvægt en afraksturinn
- Að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
- Að sjónarhorn allra er jafnt mikilvægt
Leikniviðmið
- Að bjarga sér í ensku við ýmis þjónustustörf
- Að koma skoðunum sínum á framfæri
- Nálgast viðfangsefnin á mismunandi hátt
Hæfnisviðmið
- Eiga samskipti við enskumælandi einstaklinga í gegnum ýmis þjónustustörf
- Nýta sér fjölbreyttar nálganir í námsferlinu
- Lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar úr umhverfinu
- Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- Leggja mat á árangur sinn og möguleika sína
- Hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir á ensku
- Leita nýrra leiða og mynda sér sjálfstæðar skoðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is