Talnagildi
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með tölur og gildi þeirra með fjölbreyttri nálgun. Meðal annars með mismunandi verkefnavinnu, vettvangsferðum í verslanir. Í gegnum veraldarvefinn og notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
- Hvar og hvenær talnagildi koma við sögu í daglegu lífi
- Tölum og reiknisaðgerðum
- Forgangsröðun aðgerða
- Algengum stærðfræðitáknum
- Gildi talna
Leikniviðmið
- Vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
- Temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
- Skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
Hæfnisviðmið
- Nýta sér tölulegar upplýsingar
- Vinna með tölur
- Nýta sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
- Temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
Nánari upplýsingar á námskrá.is