Peningar, tímahugtök, verðgildi
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á peninga og gildi þeirra. Unnin verða mismunandi verkefni, farið í vettvangsferðir í verslanir, veraldarvefurinn nýttur og notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
- Íslenskum peningum
- Gildi og meðferð peninga
- Að til eru fjölbreyttir gjaldmiðlar
Leikniviðmið
- Borga og/eða taka við viðeigandi peningaupphæðum
- Þekkja íslenska peninga
- Nýta sér og/eða vinna með peninga í víðu samhengi
Hæfnisviðmið
- Nýta sér peninga í athöfum daglegs lífs
- Framkvæma greiðslu eða borgun í réttu hlutfalli við útgjöld
- Nýta sér viðeigandi hjálpartæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
- Átta sig á hvaðan peningarnir koma og mikilvægi þess að halda vel utan um þá
Nánari upplýsingar á námskrá.is