Peningar, innkaup, verðmiðar
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á verðútreikninga, verðsamanburð, verðgildi og þjálfun nemenda í að lesa á verðmiða í verslunum. Farið verður í gildi peninga ásamt verklegum æfingum í búðarferðum. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
- Hvernig heimilisinnkaup fara fram
- Gildi peninga
- Fjölbreytileika verslana
- Mikilvægi innkaupalista
- Að lesa verðmiða og kassakvittanir
Leikniviðmið
- Nýta sér innkaupalista
- Nota peninga eða kort
- Lesa á verðmiða
- Fara í mismunandi verslanir
- Fara yfir kassakvittun
Hæfnisviðmið
- Búa til innkaupalista
- Versla inn fyrir heimili
- Gera verðsamanburð
Nánari upplýsingar á námskrá.is