STAR1RS05 - Réttindi og skyldur

Lýsing

Réttindi og skyldur

Einingafjöldi : 5

Þrep : 1

Starfsbrautaráfangi

Nemendur þjálfast í að taka þátt í atvinnulífinu og fá fræðslu um réttindi og skyldur launþega. Kennsla fer fram í skóla og úti á vinnustöðum. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Fjölbreyttum vinnustöðum
  • Að launakjör eru mismunandi eftir starfshlutfalli og ráðningarsamningum
  • Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
  • Mikilvægi þess að öllum réttindum fylgja ákveðnar skyldur

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nálgast launaseðla í gegnum tölvu, s.s. í heimabanka
  • Lesa launaseðla
  • Fylgja þeim skyldum sem krafa er gerð um á vinnustöðum
  • Vera meðvitaður um eigin réttindi á vinnumarkaði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Taka þátt í atvinnulífinu
  • Hafa yfirsýn yfir réttindi og skyldur launþega á Íslandi
  • Geta nýtt sér upplýsingar sem koma fram á launaseðli
  • Taka þátt í umræðum um réttindi og skyldur á vinnustöðum