Undirbúningur að náttúruvísindum
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Áfanginn er inngangur að náttúruvísindum. Í honum er lögð áhersla á hvað einkennir vísindalega hugsun og vinnubrögð náttúruvísinda. Fjallað er um hvernig maðurinn notar hinar ýmsu náttúruvísindagreinar, s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði til að auka skilning sinn á náttúrunni og heiminum. Farið er í samspil nýtingar náttúruauðlinda, einkenni fræðigreinanna og tækniþróunar. Samtímis er horft til mikilvægis þess að umgangast náttúruna af virðingu. Lögð er áhersla á að tengja viðfangsefni við daglegt líf nemenda með það fyrir augum að auka áhuga þeirra og skilning á náttúruvísindagreinum og samfélagslegu gildi þeirra. Nemendur æfast í að afla og lesa upplýsingar um náttúrufræðilegt efni, skipuleggja og framkvæma athuganir, skrá og meta niðurstöður auk þess að miðla þeim á fjölbreyttan hátt.
Þekkingarviðmið
- helstu einkennum náttúruvísindagreina, s.s. eðlisfæði, efnafræði, líffræði og jarðfræði og tengingu þeirra við daglegt líf
- tækninýjungum sem tengjast mismunandi náttúruvísindagreinum
- helstu hugtökum sem varða náttúruvísindi daglegs lífs
- samspili manns og náttúru
Leikniviðmið
- lesa og ræða texta um náttúruvísindi
- framkvæma einfaldar vísindalegar athuganir
- nýta margmiðlunarefni, gagnabanka, leitar- og samskiptavefi um náttúruvísindalegt efni á gagnrýninn hátt
Hæfnisviðmið
- skilja hvað einkennir vísindalega hugsun og vinnubrögð náttúruvísinda
- skilja hvernig maðurinn notar hinar ýmsu náttúruvísindagreinar, s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði til að auka skilning sinn á náttúrunni og heiminum
- geta á gagnrýninn hátt metið gildi upplýsinga um umhverfi, náttúru og tækni
- geta rökrætt álitamál er varða umgengni við náttúruna, tækni og nýjustu vísindi
- geta tekið afstöðu til verndunar og nýtingar náttúruauðlinda
Nánari upplýsingar á námskrá.is