Réttindi og skyldur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur þjálfast í að taka þátt í atvinnulífinu og fá fræðslu um réttindi og skyldur launþega. Kennsla fer fram í skóla og úti á vinnustöðum. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.
Þekkingarviðmið
- Fjölbreyttum vinnustöðum
- Að launakjör eru mismunandi eftir starfshlutfalli og ráðningarsamningum
- Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
- Mikilvægi þess að öllum réttindum fylgja ákveðnar skyldur
Leikniviðmið
- Nálgast launaseðla í gegnum tölvu, s.s. í heimabanka
- Lesa launaseðla
- Fylgja þeim skyldum sem krafa er gerð um á vinnustöðum
- Vera meðvitaður um eigin réttindi á vinnumarkaði
Hæfnisviðmið
- Taka þátt í atvinnulífinu
- Hafa yfirsýn yfir réttindi og skyldur launþega á Íslandi
- Geta nýtt sér upplýsingar sem koma fram á launaseðli
- Taka þátt í umræðum um réttindi og skyldur á vinnustöðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is